Á fundi ríkisstjórnarinnar þ. 1. október 2010 var ákveðið að 16. september, fæðingardagur Ómars Ragnarssonar, yrði haldinn hátíðlegur sem „dagur íslenskrar náttúru“. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lagði fram tillögu þess efnis. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar var viðurkenningu á framlagi Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru sem og allra þeirra sem lagt hafa sitt af mörkum til að efla fræðslu um íslenska nátttúru.

Dagur íslenskrar náttúru var síðan haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti þ. 16. september 2011.

Mér finnst mikilvægt að fólk muni eftir því að dagur íslenskrar náttúru er ekki bara til að flagga fallegum myndum af höfuðdjásni okkar, náttúrunni sjálfri heldur er hann til að minna okkur á að við erum fyrst og fremst gæslumenn hennar og verðum að vernda hana fyrir ágangi pólitískra afla sem hirða aðeins um notin en skilja ekki að við erum aðeins hér í stuttan tíma og berum mikla ábyrgð á að skila náttúrunni óskaddaðri til næstu kynslóða.

Ríkisstjórnin sem nú situr við völd hefur ekki staðið sig vel í þessum efnum, því leyfi ég mér að halda fram og falleg orð á tillidögum bæta þar engu um. Fjárframlög til náttúruverndar væru til skammar hvaða lýðræðisríki sem er og pólitískar ákvarðanir sem hafa með náttúruna að gera eru oftar en ekki hrikalega skammsýnar og litaðar af flokkspólitískri refskák. Rammaáætlun hundsuð, náttúruverndaráætlun sett í uppnám og græna hagkerfinu stungið undir stól. Allt upp á sömu bókina lært. Það á að troða því í gegn sem troða á í gegn. En þjóðin er orðin þroskaðari en svo að hún sætti sig slík afdalavinnubrögð. Íslendingar elska náttúruna í raun og veru. Það hafa skoðankannanir og báðir þjóðfundirnir leitt í ljós svo ekki verður um villst.

Náttúran.is fagnar degi íslenskrar náttúru með því að halda áfram starfsemi, þrátt fyrir að ráðuneyti umhverfisins og ráðuneyti ferðamála hafi ákveðið að styðja ekki við starfsemi okkar í ár og þrátt fyrir að erfitt sé að fá framámenn ferðamála til að skilja að við séum að leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að auka vægi sjálfbærni í ferðamennsku, einmitt það sem kallað er eftir úr öllum áttum og gríðarleg þörf er á en fátt er gert í nema að efna til einnar ráðstefnunnar á fætur annarri.

Okkar framlag á degi íslenskrar náttúru ár er nýtt app Græn kort - Suður, app sem inniheldur upplýsingar um aðila og fyrirbæri á sviði náttúru, hagkerfis og menningar. Appið verður aðgengilegt fyrir iOS tæki á næstu dögum en síðan einnig fyrir Android.

Til hamingju með dag íslenskrar náttúru og Ómar, til hamingju með afmælið!

Birt:
16. september 2015
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Til hamingju með dag íslenskrar náttúru “, Náttúran.is: 16. september 2015 URL: http://nature.is/d/2015/09/16/til-hamingju-med-dag-islenskrar-natturu/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: