Samráðsfundur um stefnu SFS í menntun til sjálfbærni
Starfshópur um stefnumörkun skóla- og frístundasviðs um menntun til sjálfbærni boðar til opins samráðsfundar um stefnumörkunina. Fundurinn verður haldinn þ. 13. september frá kl. 15:00 - 16:30 í Laugalækjaskóla
Dagskrá:
- Helgi Grímsson, verðandi sviðsstjóri SFS, opnar fundinn.
- Helena W. Óladóttir, formaður starfshópsins, verður með stutta kynningu á fyrirhugaðri stefnumörkun.
- Heimskaffi þar sem þátttakendum gefst kostur á að leggja sitt af mörkum við mótun stefnunnar.
Sjálfbærni er einn af sex grunnþáttum í menntastefnu þjóðarinnar. Leiðarljós menntunar til sjálfbærni er að hvetja einstaklinginn til að taka afstöðu, bregðast við og vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Sumir vilja orða það svo, að megininntak menntunar til sjálfbærni sé sameiginleg ábyrgð okkar á velferð einstaklingsins, samfélagsins og umhverfisins.
Boðaður fundur er annar tveggja sem haldnir verða í haust í þessum tilgangi en markmið þeirra er að kalla eftir hugmyndum, tillögum og væntingum þátttakenda inn í stefnumörkunina. Starfsfólk skóla- og frístundasviðs er sérstaklega hvatt til að mæta og taka þátt í mótun stefnunnar.
Hlutverk ofangreinds starfshóps er að móta stefnu sviðsins í menntun til sjálfbærni í leikskólum, grunnskólum, félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum, frístundaklúbbum og skólahljómsveitum. Hópurinn vinnur í samræmi við fyrirmæli aðalnámskráa leikskóla og grunnskóla, starfsskrár frístundamiðstöðva, stefnu um skóla án aðgreiningar og aðrar stefnur Reykjavíkurborgar sem snerta umfjöllunarefnið.
-
Menntun til sjálfbærni - samráðsfundur
- Staðsetning
- Laugalækjarskóli Leirulækur 2
- Hefst
- Miðvikudagur 16. september 2015 15:00
- Lýkur
- Miðvikudagur 16. september 2015 16:30
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Helena Óladóttir „Samráðsfundur um stefnu SFS í menntun til sjálfbærni“, Náttúran.is: 15. september 2015 URL: http://nature.is/d/2015/09/15/samradsfundur-um-stefnu-sfs-i-menntun-til-sjalfbae/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.