Opinn dagur í Skaftholti
Hinn árlegi opni dagur í Skaftholti verður á laugardaginn 29. ágúst frá kl. 14:00 til 17:00 í ár.
Auk grænmetissölu og veitinga verður börnum boðið að fara á hestbak einnig verða stuttar kynningar:
- Kl. 14:30 Í Mikjálsbæ: Kynning á búsetu og starfsemi Skaftholts.
- Kl. 15:30 Í Fjósinu: Kynning á lífefldum landbúnaði.
- Kl. 16:30 Í Gróðurhúsum: Kynning á lífefldri garðyrkju.
Að Skaftholti í Gnúpverjahreppi hefur verið stundaður lífrænn og lífefldur (bio-dynamic) búskapur undir stjórn Guðfinns Jakobssonar í yfir 30 ár. Þar hefur ennfremur verið unnið mikið og merkilegt meðferðarstarf en um 20-25 heimilismenn eru að jafnaði búsettir í Skaftholti þar sem þeir búa og vinna í nánum tengslum við náttúruna. Skaftholt er sjálfum sér nægt með búsafurðir allar.
Í kúabúi Skaftholts, þar sem mjólkin er gerilsneydd á staðnum, er einnig rekin ostagerð.
Í Skaftholti er ræktað fjölbreytt úrval grænmetis. Einnig er framleiitt nautakjöt og kindakjöt í Skafholti. Öll framleiðslan er vottuð lífræn frá Vottunarstofunni Túni.
-
Opinn dagur í Skaftholti
- Staðsetning
- None Skaftholt
- Hefst
- Laugardagur 29. ágúst 2015 14:00
- Lýkur
- Laugardagur 29. ágúst 2015 17:00
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Opinn dagur í Skaftholti“, Náttúran.is: 23. ágúst 2015 URL: http://nature.is/d/2015/08/23/opinn-dagur-i-skaftholti/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.