Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins verða afhent miðvikudaginn 30. september fyrirtækjum sem staðið hafa sig vel í umhverfismálum. Athöfnin fer fram á Hilton Reykjavík Nordica á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Óskað er eftir tilnefningum fyrir 9. september. Umhverfisfyrirtæki ársins 2015 verður útnefnt auk þess sem Framtak ársins 2015 í umhverfismálum verður verðlaunað.
Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:
Umhverfisfyrirtæki ársins
- Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
- Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
- Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
- Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
- Vinnuumhverfi öruggt
- Fyrir liggur áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað
- Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið
- Framtak ársins
Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
Hefur komi fram með nýjung – nýja vöru,þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif og gagnast víða.
Tilnefningar til umhverfisverðlauna atvinnulífsins sendist með tölvupósti á sa@sa.is merkt „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“ eigi síðar en 9. september.
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
-
Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Samtök atvinnulífsins „Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins“, Náttúran.is: 14. ágúst 2015 URL: http://nature.is/d/2015/08/14/oskad-eftir-tilnefningum-til-umhverfisverdlauna-at/ [Skoðað:26. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.