Tröllin spila keilu

Þótt björgin sem umkringja bústaðinn séu flest búin að liggja þarna um nokkurt skeið og safni mosa og skófum þá má sjá nokkur nýrri. Sum þeirra eiga ferðalag sitt og áfangastað jarðskjálftum 2000 og 2008 að þakka. Þá féllu allnokkur björg og stórgrýti og smærra grjót úr fjallinu bæði að austan og vestan.

Eitt slíkt, af sæmilegri stærð féll nýverið í landi Alviðru rétt ofan við skógrækarreit sem er við upplýsingastæði sem mörgum er kunnugt. Hér fylgja nokkrar myndir sem Einar Bergmundur tók af þessu nýlega hruni. Sumir steinarnir á stærð við smájeppa og aðrir minni sem skoppað hafa inn í miðja skógræktina og endað ekki svo ýkja langt frá þjóðveginum.

Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra varaði í dag við að margt benti til þess að spenna væri að safnast upp á SV horninu sem gæti losnað í skálfta af stærð á borð við skjálftana 2000 og 2008 eða allt að 6,5 stig.

Birt:
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Tröllin spila keilu“, Náttúran.is: 19. júní 2015 URL: http://nature.is/d/2015/06/19/trollin-spila-keilu/ [Skoðað:7. maí 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.