Dagur hinna villtu blóma í Ingólfsfjalli

Tíkin Lotta og samferðarmenn njóta útsýnisins í mjúkum mosanum í blómagöngunni. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Gróðurinn er mjög stutt kominn, að minnsta kosti 3-4 vikum seinni í þroska en í meðalári. Blóm sem annars sjást á þessum tíma voru ekki sýnileg, ekki komin í blóma. Einu blómstrin sem við sáum í fjallinu voru nokkrar gullmurur, þúfusteinsbrjótur og örfáar blóðkollur og skriðsóleyjar. Neðar, í túnfætinum við fjallið var nóg af fíflum og skriðsóleyjum í blóma, einn fjalldalafífill og þrjár hrafnaklukkur.

Bláberjalyng o.fl. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
- Túnfífill [Taraxacum spp.]
- Njóli [Rumex longifolius]
- Krækilyng [Empetrum nigrum]
- Bláberjalyng [Vaccinium uliginosum]
- Sortulyng [Arctostaphylos uva-ursi]
- Túnsúra [Rumex acetosa]
- Skriðsóley [Ranunculus repens]
- Ilmreyr [Anthoxantum odoratum]
- Maríustakkur [Alchemilla vulgaris]
- Ljónslappi [Alchemilla alpina]
- Gullmura [Potentilla crantzii]Rjúpnalauf. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Þúfusteinsbrjótur. Ljósm. Einar Bergmundur.
- Klóelfting [Equisetum arvense]
- Lófótur [Hippuris vulgaris]
- Fergin [Equisetum fluviatile]
- Sortulyng [Arctostaphylos uva-ursi]
- Hundasúra [Rumex acetosella]
- Þúfusteinsbrjótu [Saxifraga caespitosa]
- Blóðkollur [Sanguisorba officinalis]
- Hrafnaklukka [Cardamine nymanii]
- Rjúpnalauf (Holtasóley) [Dryas octopetala]
- Fjalldalafífill [Geum rivale]
Tré og runnar:
- Birki /Ilmbjörk (fá) [Betula pubescens]
- Fjalldrapi (1) [Betula nana]
- Víðir (nokkuð) [Salix sp.]
- Rifs (1) [ibes sativum]
- Loðvíðir (gríðarlega útbreyddur) [Salix lanata]
- Reyniviður (þónokkuð) [Sorbus aucuparia Linne]
Annað:
- Skófir (margar tegundir og útbreyddar)
- Fléttur (margar tegundir og útbreyddar)
- Mosi (margar tegundir og útbreyddur)
Birt:
15. júní 2015
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Dagur hinna villtu blóma í Ingólfsfjalli“, Náttúran.is: 15. júní 2015 URL: http://nature.is/d/2015/06/15/dagur-hinna-villtu-bloma-i-ingolfsfjalli/ [Skoðað:29. mars 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 16. júní 2015