Sívökvun í gróðurhúsinu

Sívökvun í gróðurhúsi. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Ribena flöskur henta vel til sívökvunar. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Ein leið til að halda nægjanlegum raka í moldinni er að fylla plastflösku af vatni, gera lítið gat (nokkra millimetra) á tappann, loka flöskunni og stinga henni svo í moldina.
Flöskur með löngum stút henta betur því þær stingast betur ofan í moldina.
Moldin tekur aðeins við þeim vökva sem hún þarf á að halda og því virkar þessi aðferð vel án þess að skammta of mikið vatn í einu.
Birt:
14. júní 2015
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sívökvun í gróðurhúsinu“, Náttúran.is: 14. júní 2015 URL: http://nature.is/d/2015/06/14/sivokvun-i-grodurhusinu/ [Skoðað:1. júní 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.