earthday.org

Í dag þann 22. apríl er „Dagur Jarðar“ haldinn hátíðlegur um allan heim en Dagur Jarðar var fyrst haldlinn hátíðlegur þ. 22. apríl 1970 í Bandaríkjunum þegar um 20 milljónir manna tóku þátt í hátíðahöldunum. Ákvörðun um að efna til Dags Jarðar var tekin árið áður á ráðstefnu grasrótarsamtaka á sviði umhverfisverndar í Bandaríkjunum. Á þeim tíma var umræðan um offjölgun í heiminum að komast í hámæli og miklar áhyggjur voru uppi um framtíð Jarðar vegna fólksfjölgunar.

En Degi Jarðar óx fiskur um hrygg er grasrótarsamtök með mismunandi umhverfisáherslur sáu mikilvægi þess að sameinast um hátíðahöld á einum degi á ári „Degi Jarðar“.

Þann 22. apríl árið 1990 voru 200 milljónir manna í 141 löndum þátttakendur í hátíðahöldum Dags Jarðar og áherslan á verndun Jarðar með aukinni endurvinnslu, baráttu gegn olíuslysum, verksmiðjumengun, afrennslisvandamálum, eyðingu búsvæða villtra dýra o.s.fr.

Loftslagsmál, orkusparnaður og umhverfisfræðsla eru nokkur af því sem er í sviðsljósinu í ár.
Áherslan er m.a. að rækta skóg, markmiðið er að milljarður trjáa verði gróðursett.

Nú 45 árum eftir fyrsta Dag Jarðar stöndum við frammi fyrir vandamálum sem tekur alla jarðarbúa að leysa. Þess vegna hefur Dagur Jarðar aldrei verið mikilvægari en í dag. Hægt er að sjá nánar um það sem um er að vera í heiminum í dag á Degi Jarðar á hinum opinbera Jarðadagsvef earthday.org.

Jarðardagur hefur þó ekki náð að festa sig almennilega í sessi hér á landi. Skýringin er vafalaust sú að við höfum okkar eigin „Dag náttúrunnar“ og „Dag umhverfisins“ þremur dögum seinna og í ofanálag fellur okkar fyrsti sumardagur oft einmitt á þennan dag.

Í ár virðist Dagur Jarðar þó hafa vinninginn, kannski sérstaklega af því að Dagur umhverfisins fellur á frídag en hann er á laugardaginn 25. apríl.

Birt:
22. apríl 2015
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Dagur Jarðar “, Náttúran.is: 22. apríl 2015 URL: http://nature.is/d/2015/04/22/dagur-jardar/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: