Göngustígur í Kerlingarfjölllum. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Stuðningur við stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands er 61,4% samkvæmt nýrri könnun sem Gallup vann fyrir Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands. Stuðningurinn hefur aukist um 5 prósentustig frá sambærilegri könnun í október 2011. Þá hefur þeim fækkað sem eru andvígir stofnun þjóðgarðs en þau eru einungis 12,4% aðspurðra.

Stuðningur við stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er þvert á stjórnmálaflokka. Á meðal stuðningsmanna allra stjórnamálaflokka eru mun fleiri aðspurðra fylgjandi stofnun þjóðgarðs en andvíg. 51% af þeim er styðja ríkisstjórnina styðja stofnun þjóðgarðs en einunigs 19% eru andvíg. Stuðningur þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina er 72% og 9% eru andvíg þjóðgarði.

Niðurstaða þessarar könnunar er mikið fagnaðarefni fyrir baráttuna fyrir vernd hálendis Íslands og greinilegt að hún nýtur síaukins stuðnings meðal þjóðarinnar. Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands vinna nú að sameiginlegu verkefni um varanlega vernd hálendisins.

Stærð úrtaks var 1418 manns og þátttökuhlutfall 61,8%.

Birt:
27. mars 2015
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „61% styðja stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu“, Náttúran.is: 27. mars 2015 URL: http://nature.is/d/2015/03/27/61-stydja-stofnun-thjodgards-midhalendinu/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: