Mastursfótur á Hellisheiði. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir."Landvernd, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist, Ferðaklúbburinn 4x4 og SAMÚT, Samtök útivistarfélaga, hafa gengið frá sameiginlegum athugasemdum við drög að matsáætlun Landsnets um fyrirhugaða 220kV háspennulínu um Sprengisand og matsáætlun Vegagerðarinnar um nýjan, uppbyggðan Sprengisandsveg. Ofangreind samtök krefjast þess að Landsnet og Vegagerðin hætti við framkvæmdirnar og dragi til baka tillögur sínar.

Ljóst er að framkvæmdir Landsnets og Vegagerðarinnar myndu hafa mikil og óafturkræf áhrif á miðhálendið. Framkvæmdirnar myndu kljúfa víðerni hálendisins, valda umferðargný í stað öræfakyrrðar og bjóða upp á hættu á frekari „láglendisvæðingu“ hálendisins með uppbyggingu margskonar innviða og þjónustu á svæðinu. Framkvæmdum myndi fylgja umfangsmikið rask og óásættanleg áhrif á náttúru, landslag og víðerni en einnig skerða möguleika á útivist og ferðaþjónustu á hálendinu. Hálendið eins og við þekkjum það í dag, myndi því tilheyra fortíðinni.

Allir eru sammála um að miðhálendi Íslands býr yfir fágætum verðmætum. Þar er hægt að upplifa lítt snortna og ómanngerða náttúru og njóta einveru og kyrrðar í umhverfi sem náttúran sjálf hefur skapað. Hugmyndir Landsnets og Vegagerðarinnar ógna þessum gæðum; gæðum sem við teljum einstök, ekki bara fyrir Íslendinga, heldur einnig á heimsvísu. Það er hlutverk okkar allra að tryggja þessi grunngildi hálendisins þannig að við, gestir okkar og komandi kynslóðir fái notið þeirra.

Ljóst er að Sprengisandslína og Sprengisandsvegur eru gríðarlega umdeild á meðal þjóðarinnar. Svo viðamiklar framkvæmdir þurfa því miklu dýpri og ítarlegri umræðu í samfélaginu. Landsskipulagsstefna sem taka á við af svæðisskipulagi miðhálendisins 2015 er ekki tilbúin og almenningi hefur því ekki verið kynnt stefnan. Þá á Alþingi eftir að taka hana til efnislegrar meðferðar og afgreiðslu. Þá skortir einnig frekari umræðu í samfélaginu um fleiri valkosti en byggingu Sprengisandslínu og Sprengisandsvegar. Sprengisandsvegur er ekki á núgildandi samgönguáætlun 2011-2022. Sprengisandslína byggir á kerfisáætlun sem samþykkt var nýlega af stjórn Landsnets án þess að brugðist hafi verið við meginathugasemdum sem bárust við áætlunina, t.d. hvað varðar grundvallarforsendur hennar og val á milli jarðstrengja og loftlína. Þetta eru helstu ástæður þess að ofangreind samtök telja ótímabært að ráðast í mat á umhverfisáhrifum þessara framkvæmda.

Mikilvæg atriði vantar auk þess inn í fyrirhugað mat á umhverfisáhrifum Sprengisandslínu og Sprengisandsvegar. Dragi Landsnet og Vegagerðin ekki til baka matsáætlanir sínar er gerð sú krafa að bætt verði úr því og Landsnet vinni mat á umhverfisáhrifum jarðstrengs (AC og DC) yfir alla Sprengisandsleið en ekki eingöngu hluta hennar. Jafnframt er farið fram á að Vegagerðin kanni áhrif Sprengisandsvegar á hljóðvist á svæðinu, en ekki er gert ráð fyrir því í drögum að matsáætlun. Þá er leitað eftir afstöðu Skipulagsstofnunar til þess hvort framkvæmdirnar beri að setja í sameiginlegt umhverfismat, enda eru þær nátengdar samkvæmt drögum að matsáætlunum."

Birt:
1. desember 2014
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Landvernd, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist, Ferðaklúbburinn 4x4 og SAMÚT krefjast þess að Landsnet og Vegagerðin hætti við framkvæmdirnar og dragi tillögur sínar til baka“, Náttúran.is: 1. desember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/12/01/landvernd-ferdafelag-islands-ferdafelagid-utivist-/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: