Miðvikudagskvöldið 29. október kl. 20:30 verða haldnir tónleikar í Háskólabíó til styrktar níumenningunum sem á dögunum fengu dóm í Gálgahraunsmálinu.

Hverjum hinna dæmdu var gert að greiða 100.000 kr í sekt auk 150.000 kr í málskostnað.

Tilgangur tónleikanna er að safna fé sem afhent verður níumenningunum og jafnframt að sýna baráttu þeirra samstöðu með tónlist og gleði.

Tónlistarfólkið sem kemur fram á tónleikunum gefur allt vinnu sína en það eru :

  • Hljómsveitin Spaðar
  • Uni Stefson
  • Salka Sól og Amaba dama
  • Snorri Helgasson
  • Ojbarasta
  • KK
  • Dikta
  • Jónas Sig
  • Pétur Ben
  • Prins Póló
  • Hallveig Rúnarsdóttir óperusöngkona
  • Bubbi Morthens

Allar nánari upplýsingar veitir Bubbi Morthens í síma 896 4666 og á bubbi@bubbi.is

Miðasala  á http://midi.is/tonleikar/1/8580# og við innganginn. Miðaverð : 2.900 kr


Birt:
25. október 2014
Höfundur:
Hraunavinir
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Hraunavinir „Gálgahraunstónleikar“, Náttúran.is: 25. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/25/galgahraunstonleikar/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 28. október 2014

Skilaboð: