Fyrirlestur um þróun göngustíga, gerð og viðhald þeirra
Landvernd efnir til hádegisfyrirlestrar þar sem Bob Aitken, skoskur landfræðingur og ráðgjafi í umhverfismálum á útivistarsvæðum talar um göngustíga. Bob er frumkvöðull í skipulagningu og viðhaldi á göngustígum á hálendum svæðum í Skotlandi og víðar. Hann mun velta upp leiðum til að takast á við þær áskoranir og tækifæri sem felast í skipulagi göngustíga hérlendis með tilliti til aukins fjölda ferðamanna og aukins áhuga Íslendinga á útivist. Bob hefur sértæka reynslu í lagningu stíga á hálendi um allan heim og má þar nefna í evrópsku Ölpunum, á Írlandi, á hálendi Skotlands og víðar í Bretlandi. Bob hefur starfað við ráðgjöf varðandi göngustígastjórnun og viðhald þeirra á viðkvæmum svæðum undanfarin 30 ár.
Fyrirlesturinn verður haldinn þ. 3.október kl. 12:15 í Lögbergi, stofu 101 í Háskóla Íslands.
Aðgangur ókeypis og öllum opinn.
Ljósmynd: Göngustígur í Kerlingarfjöllum, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
-
Fyrirlestur um þróun göngustíga, gerð og viðhald þeirra
- Staðsetning
- Lögberg Sæmundargata 8
- Hefst
- Föstudagur 03. október 2014 12:15
- Lýkur
- Föstudagur 03. október 2014 13:00
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Fyrirlestur um þróun göngustíga, gerð og viðhald þeirra“, Náttúran.is: 2. október 2014 URL: http://nature.is/d/2014/10/02/fyrirlestur-um-throun-gongustiga-gerd-og-vidhald-t/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 14. október 2014