Kalifornía innleiðir plastpokabann
Ríkisstjóri Kaliforníu tilkynnti sl. föstudag um að plastpokar yrðu bannaðir í ríkinu.
Kalifornía verður þar með fyrsta ríki Bandaríkjanna til að innleiða slíkt bann en nú þegar hafa plastpokar verið bannaðir í meira en hundrað borgum, þ.á.m. San Fransisco og Los Angeles.
Í Maui County á Hawai er matarverslunum bannað að pakka innkaupavörum í plastpoka, að sjálfsögðu í óþökk plastpokaframleiðanda.
Umhverfislýtir og mengun og plastpokum er einfaldlega orðið óásættanleg en Stykkishólmsbær reið á vaðið hér á landi fyrir nokkru og innleiddi stefnu um plastpokalaust sveitarfélag frá og með þeim 4. september, sem hefur farið gríðarvel af stað.
Birt:
30. september 2014
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Kalifornía innleiðir plastpokabann“, Náttúran.is: 30. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/30/kalefornia-innleidir-plastpokabann/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 19. febrúar 2015