Ábending vegna veðurs næstu daga, 29.september til 1. október 2014

Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á veðurspá morgundagsins, mánudags sem og þriðjudags og miðvikudags.
Talsverður lægðagangur er nú á Norður Atlantshafi og næstu þrjá sólahringa koma upp að suðvesturströndinni þrjár krappar lægðir. Þeim fylgir sunnan og suðaustan stormur og talsverð eða mikil rigning um sunnan og vestanvert landið.

Á morgun, mánudag er spáð suðaustan 18-25 m/s á Suðurlandi, Faxaflóa og Breiðafirði. Það hvessir í nótt en veðurhæðin nær hámarki í fyrramálið og fram yfir hádegi. Spáð er suðaustan 15-23 m/s annars staðar á landinu á morgun, um og upp úr hádegi hvessir á Vestfjörðum og Suðausturlandi og síðdegis á norðaustanverðu landinu og á Austfjörðum. Talsverð úrkoma fylgir storminum, og mikil úrkoma er líkleg suðaustanlands.
Spáin fyrir þriðjudag og miðvikudag er eftirfarandi:

Á þriðjudag : Sunnan og suðaustan 15-23 m/s. Hvassast á Vesturlandi. Rigning, talsverð SA-lands en heldur hægari og rigning með köflum NA-til. Hiti 5 til 10 stig.

Á miðvikudag: Suðvestan 15-23 m/s og skúrir eða rigning en sunnan 10-15 m/s og úrkomulítið á Norður og Austurlanid. Hiti 5 til 9 stig.

Vakthafandi veðurfræðingar:
Elín Björk Jónasdóttir og Haraldur Eiríksson.

Birt:
28. september 2014
Tilvitnun:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra „Viðvörun frá Veðurstofu Íslands vegna slæmrar veðurspár 29. september til 1. október 2014“, Náttúran.is: 28. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/28/vidvorun-fra-vedurstofu-islands-vegna-slaemrar-ved/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: