Göngufólk á Heklu.Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn í þágu náttúruverndar.

Frumvarpið kveður á um að gerð verði tólf ára stefnumarkandi áætlun um uppbyggingu innviða en innan hennar verði þriggja ára verkefnaáætlanir, sem lagðar verða fyrir Alþingi í formi þingsályktunartillagna. Er markmiðið með áætluninni að móta stefnu, samræma og forgangsraða tillögum um uppbyggingu og viðhald innviða fyrir ferðamenn í þágu náttúruverndar.

Frumvarpið nær til landsvæða þar sem er að finna ferðamannastaði, jafnt innan eignarlanda sem þjóðlendna og nær áætlunin til landsins alls. Gert er ráð fyrir að ráðherra skipi tvo hópa, stýrihóp og samráðshóp, sem vinni saman að gerð bæði tólf ára áætlunarinnar og styttri þriggja ára verkefnaáætlana.

Áætluninni er ætlað að vernda náttúruna, koma í veg fyrir náttúruspjöll og tryggja nauðsynlegar lagfæringar, draga úr raski af völdum nýtingar, dreifa álagi, tryggja öryggi ferðamanna og meta ný svæði auk þess að sjá til þess að uppbygging innviða falli vel að heildarsvipmóti lands.

Áhersla er lögð á víðtækt samráð við gerð framkvæmdaáætlunar og verkefnaáætlana þar sem gert er ráð fyrir aðkomu sveitarfélaga, ferðaþjónustunnar, landeigenda, opinberra stofnana, háskóla, frjálsra félagasamtaka og hagsmunasamtaka auk ráðuneyta umhverfismála, ferðamála og fjármála.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið efnir til opins kynningarfundar um frumvarpið mánudaginn 6. október næstkomandi kl. 13 – 15. Fundurinn verður haldinn í sal ráðuneytisins að Skuggasundi 1, 101 Reykjavík. Óskað er eftir því að fólk skrái sig á fundinn á sérstöku skráningarformi sem er að finna hér.

Umsögnum um frumvarpið skal skila í síðasta lagi 11. október næstkomandi á netfangið postur@uar.is eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Drög að frumvarpi til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn í þágu náttúruverndar. PDF útgáfa  Word skjal.

Ljósmynd: Göngufólk á Heklu, ljósm. Árni Tryggvason.


Birt:
28. september 2014
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Frumvarp um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn í umsagnarferli“, Náttúran.is: 28. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/09/28/frumvarp-um-landsaaetlun-um-uppbyggingu-innvida-fy/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 14. október 2014

Skilaboð: