Það er sérstaklega skemmtilegt að „setja sögu á svið“ í náttúrunni.

Þátttakendur koma sér saman um hvaða sögu þeir vilja leika og skipta með sér hlutverkum.

Allir hjálpast að við að finna hluti í umhverfinu sem verða brúður í brúðuleikhúsinu.

T.d. getur köngull sem rautt reyniber er fest á verið prýðileg Rauðhetta og úlfinn er þá heldur ekki erfitt að finna.

Þátttakendur koma sér saman um svið og leikmuni og svo getur leiksýningin hafist!

Birt:
22. ágúst 2014
Höfundur:
Helena Óladóttir
Tilvitnun:
Helena Óladóttir „Ævintýri og þjóðsögur - brúðuleikhús“, Náttúran.is: 22. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/22/aevintyri-og-thjodsogur-bruduleikhus/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: