Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Hvolsvelli og Húsavík ákveðið að lýsa yfir óvissustigi vegna jarðhræringa í Bárðarbungu.

Frá því í nótt hefur verið viðvarandi jarðskjálftahrina í Bárðarbungu sem stendur enn yfir. Jarðvísindamenn og viðbragðsaðilar hafa verið upplýstir og fylgjast vel með framvindu mála.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarrás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila

Birt:
16. ágúst 2014
Tilvitnun:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra „Óvissustig vegna Bárðarbungu“, Náttúran.is: 16. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/16/ovissustig-vegna-bardabungu/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 19. ágúst 2014

Skilaboð: