Náttúran.is hlaut virtustu umhverfisverðlaun landsins „Kuðunginn“ umhverfisverðlaun Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins árið 2012 fyrir „framúrskarandi vefsíðu um umhverfismál, og jákvæð áhrif þess á almenning og fyrirtæki.“
Segir í rökstuðningi valnefndar að stofnendur og eigendur hennar séu brautryðjendur á þessum vettvangi „knúin áfram af áhuga og umhyggju fyrir náttúrunni og umhverfinu.“

Sjá nánar í frétt á vef Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins þ. 25.04.2012:

Kuðungurinn

Náttúran.is hlaut Kuðunginn fyrir samnefnda „framúrskarandi vefsíðu um umhverfismál, og jákvæð áhrif þess á almenning og fyrirtæki.“  Segir í rökstuðningi valnefndar að stofnendur og eigendur hennar séu brautryðjendur á þessum vettvangi „knúin áfram af áhuga og umhyggju fyrir náttúrunni og umhverfinu.“

Guðrún Tryggvadóttir, Einar Bergmundur og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra við afhendingu Kuðungsins„Vefsíðan hefur innleitt nýja hugsun í umhverfisvitund Íslendinga. Þar eru á einum stað aðgengilegar leiðbeiningar sem auðvelda fólki að taka upp sjálfbæran og umhverfisvænni lífsstíl.

Vefurinn gengir mikilvægu hlutverki í upplýsingamiðlun og menntun almennings og fyrirtækja. Þar er hægt að fá upplýsingar um umhverfismál heimilisins, um orkusparnað, vistvæn innkaup, betri nýtingu matvæla, sorpflokkun, um hvernig skuli flokka hluti og hvar sé hægt að skila hverjum hlut, þar er að finna skilgreiningar á hverjum flokki fyrir sig, sem oft vefst fyrir fólki. Einnig geymir vefurinn fróðleik um  hvernig hægt sé að forðast hættuleg efni við innkaup á vörum, þar er yfirlit yfir aukaefni í matvörum og skilgreiningar á umhverfismerkingum.“

Þá  opnaði ráðherra í dag nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Tilgangur Endurvinnslukortsins er að gefa almenningi  nákvæmt yfirlit yfir hvar á landinu sé tekið við hvaða úrgangsflokkum til endurvinnslu. Það er öllum aðgengilegt, bæði á íslensku og ensku án endurgjalds, og verður að finna á www.natturan.is á næstu dögum. Eigendur Náttúrunnar.is eru Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson.

Verðlaunagripurinn, Kuðungurinn, sem Náttúran.is hlaut að þessu sinni, er eftir listakonuna Ingu Elínu.

Birt:
16. júlí 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Náttúran.is — verðlaunaður umhverfisvefur“, Náttúran.is: 16. júlí 2014 URL: http://nature.is/d/2014/07/16/natturan-verdlaunadur-umhverfisvefur/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: