Húsið – App Náttúrunnar
Húsið og umhverfið er gagnvirkur upplýsingabanki með fróðleik fyrir alla fjölskylduna um allt sem snertir okkar daglega líf.
Húsið og umhverfið virkar þannig að þegar þú smellir á einstaka rými innan og utan dyra og síðan á einstaka hluti birtast upplýsingar um hvernig atriði eins og umhverfis- og heilsuáhrif, endurnýting, sparnaður og hagsýn og vistvæn innkaup geta tengst þeim.
Merkingar
Hér finnur þú safn af alls kyns merkjum sem hafa með umhverfi, sjálfbærni, endurvinnslu og hættur að gera. Aðeins með því að skilja þýðingu þeirra erum við fær um að velja jákvæðari kosti.
Leikir
Hér eru innileikir, útileikir og hugmyndir að náttúruleikjum, föndur og góð ráð fyrir fyrir þig og umhverfið.
Húsið og umhverfið er einnig að finna í vefútgáfu á Náttúran.is undir natturan.is/heimilid/husid.
Tákn fyrir Hús- og umhverfis-app Náttúrunnar: Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Húsið – App Náttúrunnar“, Náttúran.is: Jan. 17, 2015 URL: http://nature.is/d/2014/06/04/husid-app/ [Skoðað:Dec. 11, 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: June 4, 2014
breytt: Jan. 17, 2015