Heimabíó
Orkunotkun tækja s.s. heimabíóa er skilgreind með orkumerkjum s.s. Energy Star og Evrópska orkumerkinu.
Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða „Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðunotkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.
Birt:
May 2, 2014
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Heimabíó“, Náttúran.is: May 2, 2014 URL: http://nature.is/d/2014/05/02/heimabio/ [Skoðað:Dec. 9, 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: June 13, 2014