Kamilla vex vel hér á landi. Lengi var haldið að baldursbráin kæmi í staðinn fyrir kamilluna og það var ágætt að halda það meðan ekki fengust kamillufræ. Ef við minnumst þess að frænka hennar, baldursbráin, getur látið 300.000 fræ þroskast á einu sumri er skiljanlegt að kamillan gefur heilmikið af sér, þó plönturnar séu ekki margar. Einhvers staðar las ég að eitt kamillublóm heimaræktað væri á við heilan tepoka úr búð og það er mikil huggun þegar maður bograr við að tína blómin. Tínslan er þó skemmtilegt verk, því hún fer ævinlega fram í sólskini þegar blómin eru opin og krónublöðin bísperrt út í loftið. Kamillan lokar sér eins og fífill nema hún leggur blöðin niður, þegar dregur fyrir sól. Hún róar og það er gott að leggja kamillubakstra á augun. Með valurt og morgunfrú er hún góð í te handa börnum.

Úr bókinni Ætigarðurinn - handbók grasnytjungsins eftir Hildi Hákonardóttur.

Ljósmynd: Kamilla/kryddbaldursbrá [Chamomilla recutita], ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
27. apríl 2014
Tilvitnun:
Hildur Hákonardóttir „Kamilla – Chamomilla recutita“, Náttúran.is: 27. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/27/kamilla-chamomilla-recutita/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: