Til hamingju með Kuðunginn Kaffitár!
Náttúran.is óskar Kaffitári til hamingju með Kuðunginn, umhverfisverðlaun Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem fyrirtækið fékk afhend í gær á Degi umhverfisins.
Kaffitár hefur um árbil sýnt mikinn metnað á sviði umhverfismála. Árið 2010 fékk Kaffitár Svansvottun en fyrirtækið rekur sjö kaffihús (sjá kaffihús Kaffitárs hér á Grænum síðum).
Sjá alla sem hlotið hafa Kuðunginn til þessa hér á Grænum síðum.
Viðurkenningu Kuðungsins fylgir ætíð listaverk í einu eða öðru formi kuðungs. Að þessu sinni var það Bjarni Sigurðsson myndlistarmaður sem skóp verkið.
Ljósmynd: Verðlaunagripurinn, Kuðungur Kaffitárs eftir Bjarna Sigurðsson. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
26. apríl 2014
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Til hamingju með Kuðunginn Kaffitár!“, Náttúran.is: 26. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/26/til-hamingju-med-kudunginn-kaffitar/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.