Matarsóun í brennidepli á Degi umhverfisins
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið stendur fyrir morgunverðarfundi um matarsóun undir yfirskriftinni „Hættum að henda mat“, á Degi umhverfisins, 25. apríl næstkomandi.
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) áætlar að árlega fari 1,3 milljarðar tonna matvæla til spillis. Þetta er álíka mikill matur og framleiddur er árlega í Afríku sunnan Sahara eyðimerkurinnar. Á sama tíma fer ein af hverjum sjö manneskjum í heiminum svöng að sofa og yfir 20 þúsund börn deyja daglega úr næringarskorti.
Þessar staðreyndir endurspegla verulegt ójafnvægi þegar kemur að lífsstíl fólks sem aftur hefur stórfelld áhrif á umhverfið, m.a. vegna losunar gróðurhúsalofttegunda, land- og vatnsnotkunar og ýmissar mengunar sem hlýst af matarframleiðslu.
Á fundinum verður fjallað um umfang, ástæður og afleiðingar matarsóunar, hvað stýrir okkur sem neytendum þegar kemur að kaupum á mat, hvernig nýta má betur hráefni við matvælaframleiðslu, hvernig draga má úr matarsóun í mötuneytum og þá vitundarvakningu sem hefur orðið meðal almennings og stjórnvalda varðandi þessi efni.
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpar fundinn.
Morgunverðarfundurinn fer fram föstudaginn 25. apríl næstkomandi í Heklusal Hótel Sögu og hefst kl. 8:30 en áætlað er að honum verði lokið kl. 10:30. Fundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis en óskað er eftir því að fundargestir skrái sig fyrir kl. 12 á hádegi 23. apríl. Afgangs matur verður nýttur í Kaffistofu Samhjálpar.
Hættum að henda mat!
- Ávarp - Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
- Sóun matvæla – umfang, ástæður og afleiðingar - Dr. Daði Már Kristófersson, umhverfis- og auðlindahagfræðingur.
- Neytendasálfræði: Hvað stýrir ákvörðunum neytandans? - Dr. Ragna Benedikta Garðarsdóttir, lektor í félagssálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands
- Að auka nýtingu í matvælaframleiðslu - Þóra Valsdóttir, verkefnastjóri hjá MATÍS
- Matarsóun stóreldhúsa má minnka - Heiða Björg Hilmisdóttir, deildarstjóri Eldhúss og matsala á Landspítala Íslands.
- Enga matarsóun! Vitundarvakning í fullum gangi - Dr. Rannveig Magnúsdóttir, starfsmaður Landverndar og verkefnisstjóri „Zero Waste“.
- Umræður
Fundarstjóri er Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Fundurinn er ókeypis og öllum opinn. Skráningarform er að finna á uar.is/matarsoun.
Ljósmynd: Matur í ruslagámi í Reykjavík.
-
Morgunverðarfundur á degi umhverfisins
- Staðsetning
- None Bændahöllinni við Hagatorg
- Hefst
- Föstudagur 25. apríl 2014 08:30
- Lýkur
- Föstudagur 25. apríl 2014 10:30
-
Dagur umhverfisins
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Matarsóun í brennidepli á Degi umhverfisins“, Náttúran.is: 14. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/14/matarsoun-i-brennidepli-degi-umhverfisins/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 11. ágúst 2014