Hildur Hákonardóttir, lista- og búkona með meiru, hefur starfað sem ráðgjafi og greinarhöfundur frá stofnun Náttúrunnar.

Greinar úr bókum Hildar „Ætigarðinum“ og „Blálandsdrottningunni“ birtast hér á vefnum reglulega auk þess sem Hildur hefur verið með í ráðum við þróun liða s.s. Eldhúsgarðsins sem er sameiginlegt hugarfóstur þeirra Guðrúnar Tryggvadóttur og Hildar. Reynsla Hildar af uppeldi plantna og annarra lífvera auk listrænnar og hagsýnnar túlkunnar á lífinu almennt á stóran þátt í efni og anda Náttúrunnar.

Ljósmynd: Hildur Hákonardóttir í kartöflugarðinum í Alviðru. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
10. febrúar 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Hildur Hákonardóttir lærimóðir og ráðgjafi Náttúrunnar“, Náttúran.is: 10. febrúar 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/05/hildur-hakonardottir-laerimodir-og-radgjafi-nattur/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. apríl 2014
breytt: 23. mars 2016

Skilaboð: