Vistræktarsíða Náttúrunnar
Vistræktarsíðu Náttúrunnar er ætlað að vera samansafn fróðleiks um vistrækt á íslensku. Hér verður deilt áhugaverðum upplýsingum sem nýst getur iðkendum, ræktendum og áhugamönnum um hugmyndafræðina.
Vistrækt er heildrænt hönnunarkerfi sem líkir eftir náttúrunni með það að markmiði að skapa sjálfbært samfélag. Í því felst m.a. matvælaframleiðsla sem vinnur með náttúrulegu umhverfi.
Vistrækt hefur að leiðarljósi sjálfbæra, umhverfisvæna landnotkun, uppbyggingu jarðvegs og stöðugra samfélaga manna, plantna og dýra.
Tákn fyrir Vistrækt á Náttúrunni: Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.
Birt:
3. mars 2016
Tilvitnun:
Guðrún Hulda Pálsdóttir „Vistræktarsíða Náttúrunnar“, Náttúran.is: 3. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2014/03/31/vistraektarsida-natturunnar/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 31. mars 2014
breytt: 3. mars 2016