Vistræktarsíðu Náttúrunnar er ætlað að vera samansafn fróðleiks um vistrækt á íslensku. Hér verður deilt áhugaverðum upplýsingum sem nýst getur iðkendum, ræktendum og áhugamönnum um hugmyndafræðina.

Efni síðunnar er í sífelldri mótun og við tökum því fagnandi öllum efniviði sem lesendur geta útvegað okkur sem og ábendingum um betrumbætur á því efni sem þegar er til staðar.

Vistrækt er heildrænt hönnunarkerfi sem líkir eftir náttúrunni með það að markmiði að skapa sjálfbært samfélag. Í því felst m.a. matvælaframleiðsla sem vinnur með náttúrulegu umhverfi.

Vistrækt hefur að leiðarljósi sjálfbæra, umhverfisvæna landnotkun, uppbyggingu jarðvegs og stöðugra samfélaga manna, plantna og dýra.

Smelltu á táknin i hringnum hér í borðanum efst á síðunni til að fræðast um vistræktarviðmiðin 12 og grunngildin 3.

Ef þú hefur efni til að miðla á síðunni hafði þá samband við okkur á nature@nature.is.

Viðmið og táknmyndir fyrir Vistrækt á Náttúrunni: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.

Birt:
28. febrúar 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Hulda Pálsdóttir „Vistrækt á Náttúrunni“, Náttúran.is: 28. febrúar 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/23/vistraektarsida-natturunnar/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 23. mars 2014
breytt: 27. október 2014

Skilaboð: