Þjórsá byljar fram um foss,
fegurð heims um dali,
enginn á sér fegurra land,
né máttugri fjallasali.

Rauðleit leika roðaský
um rökkursins morgunhimna,
orð mín geta ekki lýst,
því sem ég innst í hjarta skynja.

Drottinn, fögur eru verkin þín,
fagur fjallanna hringur.
Sól rís í suðaustri við Þríhyrning
og Eyjafjallajökull syngur.

Höfundur: Ingibjörg Elsa Björnsdóttir

Ljósmynd: Urriðafoss. Ljósmyndari: Árni Tryggvason.

Birt:
21. mars 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir „Við Þjórsá“, Náttúran.is: 21. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/21/vid-thjorsa/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: