Nýtt E aukefnatól

Náttúran.is hefur nú þróað nýtt E aukefnatól í handhægt form sem hægt er að skoða hér á vefnum en einnig á farsímum og spjaldtölvum.

Hér er hægt að leita eftir þeim E aukefnum sem birtast á innihaldsmiðum umbúða og vera þannig upplýstur um hvort að innihaldsefni eru í grænum, rauðum eða gulum flokki.

  1. Grænt efni sem eru almennt talin hættulaus eða jafnvel holl.
  2. Gult efni sem vert er að kynna sér betur og móta eigin afstöðu til.
  3. Rautt efni sem almennt eru talin varasöm eða jafnvel hættuleg.

Um E aukefnin:

Öll aukefnin hafa svokallað E númer, en E stendur fyrir Evrópu.

Um er að ræða efni eins og litarefni, þráavarnarefni og bindiefni. Sum efnin eru talin geta haft skaðleg áhrif á heilsu manna á meðan önnur aukefni eru beinlínis andoxandi og talin geta aukið hreysti og heilsu. Þriðji flokkur efna er síðan tiltölulega hlutlaus, þ.e. veldur hvorki neikvæðum né jákvæðum áhrifum. Skaðlegu efnin eru merkt rauðu megin á skalanum, hlutlaus efni á gula hluta skalans og efni sem talin eru hafa jákvæð áhrif á líkamann eru merkt grænu megin á skalanum. Heimilda er getið í hverju tilviki fyrir sig en varúðarstig er aðeins gefið upp til hliðsjónar og Náttúran.is tekur ekki afstöðu til þessar efna með neinum hætti.

Með því að velja heiti E efnisins sem þú hefur áhuga á að fá upplýsingar um getur þú öðlast betri þekkingu á viðkomandi aukefni. Þú getur beitt skynsemi þinni og þekkingu til að velja frekar þau aukefni sem hafa jákvæð áhrif og þannig haft áhrif á markaðinn. Ef við neytendur stöndum saman, þá getum við breytt ansi miklu í veröldinni.

Matvælastofnun ber ábyrgð á eftirliti með aukefnum í matvælum hér á landi.

Birt:
16. september 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „E aukefnatól“, Náttúran.is: 16. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/02/19/e-efna-listi/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. febrúar 2014
breytt: 8. mars 2016

Skilaboð: