Náttúran birtir nú annað sáðalmanak ársins 2013. Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún fékkst við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur    Tími

1.   mars  00 – 09 rót, 10 – 22 blóm
3.   mars  00 – 16 blóm, 16 – 24 óhagstætt
4.   mars  00 – 24 blað
5.   mars  00 – 11 blað, 11 – 24 óhagstætt
6.   mars  00 – 12 óhagstætt, 12 – 17 ávextir, 17 – 22 óhagstætt, 22 – 24 blóm
7.   mars  00 – 10 blóm, 11 – 24 ávextir
8.   mars  00 – 12 ávextir, 13 – 24 rót
9.   mars  00 – 24 rót
10. mars  00 – 11 rót, 12 – 24 blóm
11. mars  00 – 19 blóm, 20 – 24 blað
12. mars  00 – 24 blað
13. mars  00 – 24 blað
14. mars  00 – 17 blað, 18 – 24 ávextir
15. mars  00 – 24 ávextir
16. mars  00 – 02 ávextir, 02 – 11 óhagstætt, 11 – 16 ávextir, 17 – 24 rót
17. mars  00 – 24 rót
18. mars  00 – 17 rót, 18 – 24 blóm
19. mars  00 – 07 blóm, 8 – 16 rót, 17 – 24 blóm
20. mars  00 – 24 blóm
21. mars  00 -  17 blóm, 17 – 24 óhagstætt
22. mars  óhagstætt
23. mars  00 – 08 óhagstætt, 08 – 17 blað, 18 – 24 ávextir
24. mars  00 – 24 ávextir
25. mars  00 – 24 óhagstætt
26. mars  00 – 09 ávextir, 10 – 24 rót
27. mars  00 – 24 rót
28. mars  00 – 03 rót, 04 – 13 blóm, 14 – 24 rót
29. mars  óhagstætt
30. mars  óhagstætt
31. mars  óhagstætt

1. til 5. mars kl. 12 hagstætt til útplöntunar og klippingar trjáa og runna.
5. mars frá hádegi til og með 18. mars hagstætt til græðlingatöku. Veljið ávaxtadaga til græðlingatöku af berjarunnum.
Frá og með 19. mars aftur hagstætt til útplöntunar/umplöntunar og klippingar trjá og runna.

Sáðalmanak hvers dags birtist nú einnig á Viðburðardagatalinu hér til hægri á síðunni.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Eldhúsgarðurinn byrjar í huganum, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

 

Birt:
28. febrúar 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sáðalmanak mars 2013 “, Náttúran.is: 28. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/28/sadalmanak-mars-2013/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: