Landvernd og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands halda opinn fund um heildarendurskoðun náttúruverndarlöggjafar á Íslandi í kvöld, 18. febrúar kl. 20-22 í Norræna húsinu. Markmiðið með fundinum er að draga fram breytingar á núverandi lögum í heild sinni og ræða hvað er til bóta og hvað megi betur fara.

Frumvarpið verður rætt út frá forsendum breytinga á löggjöfinni að mati nefndar um endurskoðun laganna, kynntar verða helstu breytingar miðað við núverandi lög og athugasemdir lagðar fram af nokkrum hagsmunaaðilum frá náttúruverndar- og útivistarsamtökum. Fundinum lýkur með pallborði og umræðum.

Framsöguerindi:

  • Forsendur breytinga á lögum um náttúruvernd: Aagot V. Óskarsdóttir, lögfræðingur og ritstjóri hvítbókar um löggjöf til verndar náttúru Íslands.
  • Frumvarp til laga um náttúruvernd, helstu atriði og breytingar frá fyrri lögum: Mörður Árnason, alþingismaður.
  • Athugasemdir áhugahóps um ferðafrelsi: Elín Björg Ragnarsdóttir, lögfræðingur.
  • Athugasemdir Útivistar: Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar
  • Athugasemdir Landverndar: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar

Pallborðsumræður með frummælendum í lokin. Auk þeirra mun Reynir Tómas Geirsson frá Kayakklúbbnum sitja í palliborði.
Fundarstjóri er Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslandi.

Ljósmynd: Landskemmdir í Sogum, Árni Tryggvason.

Birt:
18. febrúar 2013
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Fundur um frumvarp að nýjum náttúruverndarlögum “, Náttúran.is: 18. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/18/fundur-um-frumvarp-ad-nyjum-natturuverndarlogum/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: