Sáðalmanak febrúar 2013
Náttúran birtir nú fyrsta sáðalmanak ársins 2013. Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.
Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún fékkst við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.
Dagur Tími
1. febr. 00 – 24 rót
2. febr. 00 – 24 rót
3. febr. 00 – 03 rót, 04 – 22 blóm
4. febr. 05 – 10 blóm, 11 – 24 blað
5. febr. 00 – 24 blað
6. febr. 01 – 22 ávextir
7. febr. óhagstætt
8. febr. 01 – 15 ávextir, 16 – 24 rót
9. febr. 00 – 24 rót
10. febr. 00 – 14 rót, 15 – 24 blóm
11. febr. 00 – 10 blóm, 10 – 24 óhagstætt
12. febr. óhagstætt
13. febr. 00 – 12 óhagstætt, 12 – 24 blað
14. febr. 00 – 24 blað
15. febr. 00 – 08 blað, 09 – 24 ávextir
16. febr. 00 – 04 ávextir, 05 – 19 blóm, 20 – 24 ávextir
17. febr. 00 – 06 ávextir, 08 – 24 rót
18. febr. 00 – 09 rót, 09 – 14 óhagstætt, 14 – 22 rót
19. febr. 00 – 10 blóm, 11 – 24 rót
20. febr. 00 – 09 rót, 09 – 24 blóm
21. febr. 00 – 05 blóm, 10 – 24 blóm
22. febr. 00 – 16 blóm, 17 – 24 blað
23. febr. 00 – 24 blað
24. febr. 00 – 08 blað, 09 – 24 ávextir
25. febr. 00 – 24 ávextir
26. febr. 00 – 09 ávextir, 09 – 19 óhagstætt, 19 – 24 ávextir
27. febr. 01 – 24 rót
28. febr. 00 – 24 rót
Sáðalmanak hvers dags birtist nú einnig á Viðburðardagatalinu hér til hægri á síðunni.
Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.
- Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
- Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
- Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
- Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn
Annað skýrir sig sjálft.
Grafík: Eldhúsgarðurinn byrjar í huganum, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sáðalmanak febrúar 2013“, Náttúran.is: 13. febrúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/02/13/sadalmanak-februar-2013/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2014