Heimildamyndin HVELLUR, eftir Grím Hákonarson, verður frumsýnd í Bíó Paradís 24. janúar nk.

HVELLUR fjallar um einstakan atburð í Íslandssögunni. Að kvöldi 25. ágúst 1970 tóku bændur í Suður-Þingeyjarsýslu sig saman og sprengdu í loft upp stíflu í Laxá við Mývatn. Bændurnir höfðu mótmælt harðlega virkjanaáformum á svæðinu en sjónarmið þeirra voru virt að vettugi. Með sprengingunni tókst bændunum að koma í veg fyrir eyðileggingu Laxár og Mývatns. 113 lýstu verkinu á hendur sér, 65 voru ákærðir. Samstaðan brást aldrei og aldrei kom fram hver sprengdi. Þessi uppreisn markaði upphaf náttúruverndarbaráttu á Íslandi.

Sjá nánar um Hvell á bioparadis.is.

Birt:
16. janúar 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Heimildarmyndin Hvellur frumsýnd“, Náttúran.is: 16. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2013/01/16/heimildarmyndin-hvellur-frumsynd/ [Skoðað:21. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: