Barnahúsgögn eru oft stækkanleg, t.d. hægt að lengja rúm og hækka borð og stóla. Slík húsgögn geta verið mjög umhverfisvæn þar sem þau er hægt að nota lengi. Það er þó margt annað sem hafa ber í huga eins og t.d. hvort að þau séu raunverulega það sterkbyggð að þau þoli margra ára ef ekki áratuga notkun.

Vönduð húsgögn úr viði má oft umbreyta og ljá ný hlutverk eftir því sem fjölskyldan þroskast eða aðstæður breytast. Gömul húsgögn nýtast einnig eftir að þú og fjölskylda þín þurfa ekki á þeim að halda lengur og engin ástæða til að kasta þeim á haugana. „Góði hirðirinn“ nytjamarkaður Sorpu og líknarfélaga tekur t.a.m. við öllum húsgögnum fegins hendi og selur í versluninni „Góða hirðinum“ eða gefur áfram til bágstaddra. Nytjagáma má finna á öllum endurvinnslustöðvum Sorpu og á sorpstöðvum ýmissa sveitarfélaga. Einnig má auglýsa húsgögn til sölu og fá fyrir þau pening eða gefa beint til vina og vandamanna. Síðasta úrræðið ætti að vera að kasta þeim.

Innbú okkar samanstendur af ýmsum efnum bæði úr jurta- og steinaríkinu s.s. viði, málmum, gleri, trefjum úr plöntum, steinefnum og úr gerviefnum allskonar. Það eru aðallega þau sem að við þurfum að vera með augun opin gagnvart. Ekki aðeins getur útgufun ákveðinna efna verið heilsuspillandi heldur geta umhverfisáhrif verið geigvænleg. Yfir 100.000 efni eru notuð í allskyns framleiðslu í heiminum í dag, mörg hver hafa ekki verið rannsökuð nægjanlega áður en þau verða hluti framleiðslu. Eins gildir að það sem er meinlaust í ákveðnu magni getur verið skaðlegt í meira magni eða í sambandi við önnur efni.

Ef við tökum húsgögn úr viði sem dæmi, þá skiptir máli út frá umhverfissjónarmiðum að skógurinn hafi verið ræktaður á sjálfbæran hátt.  Húsgögn merkt sem Forest Stewardship Council (FSC) eru örugglega ekki úr regnskógarvið heldur úr sjálfbærum skógum. Korkur er talin til þeirra náttúruefna sem er umhverfisvænt, sérstaklega ef hann er endurunnum úr korktöppum. PVC- gólfdúkur getur aftur á móti undir engum kringumstæðum talist heilsusamlegur né umhverfisvænn.

Þegar kaupa á húsgögn í barnaherbergið er ráðlagt að kaupa vandaða og endingargóða vöru. Sem kaupandi hefurðu rétt til að vita hvaðan efnin sem húsgögnin eru gerð úr séu fengin og hvernig og hvar vinnsla fór fram. Athugaðu að áklæðið getur innihaldið eiturefni svo og leðurlíki sem getur innihaldið PVC. Það er ekki dónalegt að spyrja spurninga í verlsunum. Til að ná fram breytingum á framboði verða neytendur að byrja á að spyrja spurning og setja fram kröfur, öðruvísi gerist ekkert.

Birt:
5. janúar 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Barnahúsgögn“, Náttúran.is: 5. janúar 2013 URL: http://nature.is/d/2007/06/25/barnahsggn/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 25. júní 2007
breytt: 13. júní 2014

Skilaboð: