Sáningartími, gróðursetningartími og uppskerutími í Eldhúsgarðinum
Í Eldhúsgarðurinn er virkni um matjurtirnar í garðinum þar sem upplýsingar um sáningartíma þ.e.; sáning innandyra „innisáning“ og sáningartími utandyra þ.e. beint í jörð „útisáning“, gróðursetning þeirra fræja sem vildu koma upp og eru tilbúnar til að fara út í íslenska veðráttu „gróðursetning innisáningar“ og uppskerutími „uppskera“ birtist um hverja matjurt fyrir sig.
Einnig er hægt að sjá hve mikið vaxtarrými hver jurt þarf í sentimetrum.
Með því að smella á ákveðinn beð og síðan tilteknar jurtir birtast upplýsingarnar.
Birt:
19. apríl 2013
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sáningartími, gróðursetningartími og uppskerutími í Eldhúsgarðinum“, Náttúran.is: 19. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2009/06/27/saningartimi-grooursetningartimi-og-uppskerutimi-n/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 27. júní 2009
breytt: 1. janúar 2013