Ætihvannarhóstatöflur

Stönglarnir settir í krukku og flórsykri hellt yfir, hrista verður niður í krukkunni nokkrum sinnum til að geta fyllt hana alveg. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Stönglarnir togaðir upp úr krukkunni. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Daníel Tryggvi 5 ára að sprauta hvannardropum á smjörpappír. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Látið liggja í 2-14 daga. Hristið krukkuna af og til. Flórsykurinn sýgur vökvann smám saman úr hvannarstönglunum. Stönglarnir eru síðan teknir upp úr krukkunni, vökvinn þykktur með aðeins meiri flórsykri og látið dropa eða sprautað með kúasprautu á smjörpappír. Látið þorna í 1-2 daga. Þá eru droparnir losaðir af smjörpappírnum og settir í ílát. Geymist þannig vel allan veturinn.
Uppskrift: Dr. Christian Osika.
Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is
Birt:
27. júlí 2015
Tilvitnun:
Náttúran „Ætihvannarhóstatöflur“, Náttúran.is: 27. júlí 2015 URL: http://nature.is/d/2007/05/16/tihvannarhstatflur/ [Skoðað:1. maí 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. maí 2007
breytt: 28. júlí 2015