Mikilvægasti hlekkurinn í almannavarnakerfinu eru íbúar þessa lands. Nú þegar margir sitja í myrkrinu og líður hugsanlega ekki vel þá eru góðir nágrannar og vinir verðmætir. Einnig eru margir sem ekki geta fylgst með fréttum eða nálgast upplýsingar. Gott er að kanna hvernig þeir hafa það og sjá hvort stutt símtal eða önnur samskipti geti ekki létt lundina.  Á slíkum náungakærleik hefur almannavarnakerfið á Íslandi verið byggt upp. Í dag eru 50 ár síðan að fyrstu lög um almannavarnir voru samþykkt á Alþingi þann 29. desember 1962.

Birt:
29. desember 2012
Tilvitnun:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra „Mikilvægt að hafa samband við nágranna sína“, Náttúran.is: 29. desember 2012 URL: http://nature.is/d/2012/12/29/mikilvaegt-ad-hafa-samband-vid-nagranna-sina/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: