Með vitundarvakningu og þátttöku almennra neytenda er hægt að nota markaðsöflin til þess að leysa mörg af þeim umhverfisverkefnum sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag, hvort sem þau eru staðbundin eða hnattræn. Þetta vill Náttúran er ehf. gera með því að vera:

  • fréttamiðill og veita neytendum óháðar upplýsingar um vörur og þjónustu sem tengjast náttúrunni, umhverfis-, félagslegum og/eða heilbrigðismálum og sjálfbærri þróun á einn eða annan hátt.
  • vettvangur fyrirtækja og stofnana til að koma upplýsingum um vöru og/eða þjónustu, sem tengjast fyrrgreindum málaflokkum, á framfæri við neytendur á hlutlausan og trúverðugan hátt.
  • markaðstorg þar sem neytendur geta keypt heilsusamlegar og umhverfisvænar vörur á hagstæðum kjörum.

Náttúran er ehf. leitar stöðugt nýrra leiða til að upplýsa neytendur um umhverfi sitt auk þess að minnka umhverfisáhrif af starfsemi fyrirtækisins og koma í veg fyrir mengun. Náttúran er ehf. á að vera fyrirmynd annarra í umhverfismálum og starfar í samræmi við íslensk lög og reglur.

Lógó Náttúrunnar: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.

 

Birt:
12. nóvember 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Umhverfisstefna Náttúrunnar er“, Náttúran.is: 12. nóvember 2012 URL: http://nature.is/d/2007/04/06// [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 6. apríl 2007
breytt: 12. nóvember 2012

Skilaboð: