Stjórn Landverndar hefur sent stjórn Landsvirkjunar bréf þar sem farið er fram á að Landsvirkjun stöðvi nú þegar framkvæmdir fyrirtækisins við fyrirhugaða 45-90 MW Bjarnarflagsvirkjun þar til rammaáætlun hefur verið samþykkt á Alþingi.

Einnig fer stjórn Landverndar fram á að Landsvirkjun vinni nýtt mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar en núgildandi mat er að verða tíu ára gamalt. Á undanförnum tíu árum hafa orkufyrirtækin öðlast mikilvæga reynslu af rekstri jarðvarmavirkjana og umhverfisáhrifum þeirra sem gæti haft áhrif á niðurstöðu nýs umhverfismats. Í þessu sambandi bendir stjórn Landsvirkjunar sérstaklega á spurningar sem hafa vaknað um mengun frá fyrirhugaðri virkjun, bæði affallsvatns og brennisteinsvetnis. Einnig getur möguleg kæling á grunnvatnsstreymi í kjölfar orkuvinnslu minnkað kísilstreymi til Mývatns, sem er ein undirstaða fjölbreytss lífríkis vatnsins.

Einstakt lífríki Mývatns skapar því sérstöðu á heimsvísu. Þess vegna segir í nýsamþykktri verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá að það sé skylda núlifandi kynslóðar að varðveita sérstöðu svæðsins: ,,Það er því skylda núlifandi kynslóðar að varðveita sérstöðu þessa merkilega svæðis og þar með að tryggja komandi kynslóðum sama aðgengi og svipaða upplifun og við getum notið nú í dag.“ Í bréfi stjórnar Landverndar eru stjórnarmenn Landsvirkjunar beðnir um að hafa það í huga við afgreiðslu erindisins.

Sjá bréfið sem Landvernd sendi Landsvirkjun.

Ljósmynd: Frá famkvæmdasvæðinu við Bjarnarflag nú á dögunun, Landvernd.

Birt:
7. október 2012
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Guðmundur Hörður Guðmundsson „Landvernd fer fram á að framkvæmdir við Mývatn verði stöðvaðar“, Náttúran.is: 7. október 2012 URL: http://nature.is/d/2012/10/07/landvernd-fer-fram-ad-framkvaemdir-vid-myvatn-verd/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: