Landvernd og Fuglavernd hafa sent skrifstofu Ramsar samningsins erindi þar sem farið er fram á að samningurinn rannsaki möguleg áhrif 45-90 MW jarðvarmavirkjunar Landsvirkjunar í Bjarnarflagi á lífríki Mývatns. Mývatns- Laxársvæðið er eitt þriggja Ramsarsvæða á Íslandi sem njóta verndar samkvæmt samningnum, en hann fjallar um vernd votlendis sem hefur alþjóðlegt gildi, ekki síst vegna fuglalífs.

Landvernd og Fuglavernd fara þess á leit við Ramsarskrifstofuna að hún grípi til eftirfarandi aðgerða:

a) Krefji íslensk stjórnvöld, sem bera ábyrgð á framfylgd samningsins hér á landi, um upplýsingar um þær hættur sem kunni að steðji að vistkerfi Mývatns og Laxár frá hinni fyrirhuguðu jarðhitavirkjun Landsvirkjunar í Bjarnarflagi.

b)Taki til skoðunar að tilnefna Mývatn-Laxá svæði á Montreux-lista samningsins sem er nokkurs konar válisti Ramsarsvæða sem hætta steðjar að og eru undir sérstöku eftirliti Ramsar-samningsins.

c) Krefji íslensk stjórnvöld um viðunandi eftirlit og vöktun á lífríki Mývatns.

Í þessu sambandi benda samtökin á að sérstaklega þurfi að leita svara við spurningum sem varða mengun frá virkjuninni. Þar ber hæst förgun affallsvatns og möguleg kæling á grunnvatnsstreymi sem getur minnkað kísilstreymi til Mývatns, sem er ein undirstaða fjölbreytts lífríkis vatnsins. Einnig benda samtökin á að Landsvirkjun hefur ekki útskýrt hvernig fyrirtækið hyggist standast kröfur varðandi brennisteinsmengun frá virkjuninni.

Einnig er vakin athygli á bloggi um þetta málefni sem undirritaður skrifaði í sumar:

Ljósmynd: Mynd frá Mývatni tekin frá útsýnispalli við Námaskarð.

Bréfið til Ramsar
Greinargerð

Birt:
28. september 2012
Tilvitnun:
Guðmundur Hörður Guðmundsson „Ramsar rannsaki áhrif jarðvarmavirkjunar á lífríki Mývatns“, Náttúran.is: 28. september 2012 URL: http://nature.is/d/2012/09/28/ramsar-rannsaki-ahrif-jardvarmavirkjunar-lifriki-m/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 2. október 2012

Skilaboð: