Á Degi íslenskrar náttúru við upphaf Evrópsku samgönguvikunnar

Náttúruskóli Reykjavíkur, Landssamtök hjólreiðamanna, Landvernd, Hjólafærni á Íslandi,  Fuglavernd og Framtíðarlandið efna til Hjólaævintýris á höfuðborgarsvæðinu. Hjólað verður frá þremur upphafsstöðum á milli vatnavinja þar sem áhugasamir fræðimenn segja frá náttúrufyrirbærum á svæðinu. Hjólaævintýrin hefjast kl. 10.30 og þeim lýkur í Elliðaárdalnum kl. 13:45 þar sem Reykjavíkurborg setur Evrópsku samgönguvikuna. Þaðan er haldið í Árbæjarsafn þar sem umhverfis- og auðlindaráðherra stendur fyrir hátíðardagskrá kl. 14:00 í tilefni Dags íslenskrar náttúru.

Upphafsstaðirnir eru við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi, Ástjörn í Hafnarfirði og í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ, en hægt er að slást í för með hjólaævintýrinu á öllum fræðslustöðunum (sjá kort). Hjólaævintýrin henta allri fjölskyldunni. Fulltrúar hjólreiðafélaganna munu leiða hjólalestirnar. Gott er að hafa með sér eigið nesti og í Árbæjarsafninu verður boðið upp á einfaldar kaffiveitingar.

Sækja kort

Hjólaævintýri 1

Bakkatjörn – Árbæjarsafn: 14,6 km

1. Bakkatjörn 10.30 – 10.50

Jón Hallur Jóhannsson og Björk Guðjónsdóttir göngufólk segja frá fuglalífinu við Bakkatjörn og á utanverðu Seltjarnarnesi.

Bakkatjörn í Vatnsmýrina 5,5 km

2. Vatnsmýri/Tjörnin11.35 – 11.55

Katrín Ragnars starfsmaður Norræna hússins verður með kynningu á endurheimt votlendis í Friðlandinu og breytingar á fuglalífi í kjölfarið.

Vatnsmýrin í Nauthólsvík 2,7 km

3. Nauthólsvík – Böðun og heittvatn12.20 – 12.40

Óttarr Hrafnkelsson, starfsmaður ÍTR í Nauthólsvík, segir frá baðmenningu Reykvíkinga þá og nú.

Nauthólsvík að Árbæjarstíflu 5,9 km

4. Elliðaárdalur - Árbæjarstífla13.30 – 13.45

Friðþjófur Árnason á Veiðimálastofnun segir frá lífríki Elliðaánna, áhrifum stíflumannvirkja á vistkerfi ánna og endurheimt búsvæða í ánum.

Stífla að Árbæjarsafni 0,5 km

5. Árbæjarsafn


Hjólaævintýri 2

Álafosskvos – Árbæjarsafn: 14,8 km

1. Álafosskvos 10.30 – 10.50

Magnús Guðmundsson, sagnfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, segir frá nýtingu heita vatnsins í Álafosskvosinni til ullariðnaðar.

Kvos að Úlfarsá 4,5 km 35 mín

2. Við ósa Úlfarsár11.25 – 11.45
Þorkell Heiðarsson, sjávarlíffræðingur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum verður með sjávardýr til sýnis og skoðunar og fræðir þátttakendur um helstu sjávardýr í fjörum á höfuðborgarsvæðinu.

Úlfarsá í Grafarvog 5,8 km 50 mín

3. Grafarvogur 12.35 – 12.55

Sindri Skúlason, fuglaáhugamaður og fuglaljósmyndari segir frá fuglalífi í Grafarvogi.

Grafarvogur að Elliðaárstíflu 4,0 km

4. Elliðaárdalur – Árbæjarstífla13.30 – 13.45

Friðþjófur Árnason á Veiðimálastofnun segir frá lífríki Elliðaánna, áhrifum stíflumannvirkja á vistkerfi ánna og endurheimt búsvæða í ánum.

Stífla að Árbæjarsafni 0,5 km

5. Árbæjarsafn


Hjólaævintýri 3

Ástjörn – Árbæjarsafn:14,8 km

1. Ástjörn 10.30 – 10.50
Steinar Björgvinsson skógfræðingur og fuglaáhugamaður verður með kynningu á fuglunum við Ástjörn.

Vegalengd frá Ástjörn að Sjálandsskóla 6,6 km

2. Sjálandsskóli 11.45 – 12.05

Helgi Grímsson skólastjóri í Sjálandsskóla segir frá vatnalífi Vífilsstaðalækjar sem rennur um skólalóðina.

Sjálandsskóli að Kópavogsleiru 2,4 km

3. Kópavogsleira / Þinghóll 12.25 – 12.45

Hilmar J. Malmquist, forstöðumaðurNáttúrufræðistofuKópavogs.

Fjörulífríkiogfornmannvist í Kópavogi.

KópavogsleiraaðÁrbæjarstíflu 5,3 km.

4. Elliðaárdalur / Árbæjarstífla 13.30 – 13.45

Friðþjófur Árnason á Veiðimálastofnun segir frá lífríki Elliðaánna, áhrifum stíflumannvirkja á vistkerfi ánna og endurheimt búsvæða í ánum.

Stífla að Árbæjarsafni 0,5 km

5. Árbæjarsafn

Birt:
11. september 2012
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „Hjólaævintýri fjölskyldunnar 16. september 2012“, Náttúran.is: 11. september 2012 URL: http://nature.is/d/2012/09/11/hjolaaevintyri-fjolskyldunnar-16-september-2012/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: