Ágætis byrjun er verkefni sem Umhverfisstofnun stendur fyrir til að kynna umhverfismerkið Svaninn en það felur í sér að dreifa Svanspokum til nýbakaðra foreldra.

Verkefnið er unnið að norskri fyrirmynd en þar hefur sambærilegt verkefni verið í gangi síðan árið 2005. Í pokunum er bæklingur sem fjallar um umhverfismerkið Svaninn og kosti þess að velja umhverfisvottað fyrir ungabörn. Í pokanum eru einnig vöruprufur en tilgangurinn er að varpa ljósi á að Svanurinn hefur vottað breytt úrval af ungbarnavörum og að  foreldrar hafa því raunverulegt val um vöru sem er betri fyrir umhverfið og heilsuna.

Foreldrar geta náð sér í pokann á skrifstofu Umhverfisstofnunar að Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík.

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna.

Sjá þau fyrirtæki sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.

Sjá þá vöruflokka sem eru í boði af Svansvottuðum vörum hér á landi undir „Vörur/Vottað Svanurinn“ en í hverjum flokki finnur þú hvaða fyrirtæki flytja inn/dreifa viðkomandi vöruflokki og hvað vörurnar heita.

Sé varan til nákvæmlega skráð til sölu eða kynningar er hana að finna í Svansbúðinni hér á Náttúrumarkaði.

Samsvarandi flokkur er fyrir þjónustuflokkana undir„Þjónusta/Vottað Svanurinn“ hér á Grænum síðum.

Einnig er hægt að sjá gott yfirlit yfir aðilana hér á Græna Íslandskortinu í flokknum „Umhverfisvænar vörur“.

Birt:
28. ágúst 2012
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ágætis byrjun fyrir nýbakaða foreldra“, Náttúran.is: 28. ágúst 2012 URL: http://nature.is/d/2012/08/28/agaetis-byrjun-fyrir-nybakada-foreldra/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: