Skaftholti í Gnúpverjahreppi hefur verið stundaður lífrænn og lífefldur (bio-dynamic) búskapur undir stjórn Guðfinns Jakobssonar í yfir 30 ár. Þar hefur ennfremur verið unnið mikið og merkilegt meðferðarstarf en um 20-25 heimilismenn eru að jafnaði búsettir í Skaftholti þar sem þeir búa og vinna í nánum tengslum við náttúruna. Skaftholt er sjálfum sér nægt með búsafurðir allar. Í kúabúi Skaftholts, þar sem mjólkin er gerilsneydd á staðnum, er einnig rekin ostagerð. Í Skaftholti er ræktað fjölbreytt úrval grænmetis. Einnig er framleiitt nautakjöt og kindakjöt í Skafholti. Öll framleiðslan er vottuð lífræn frá Vottunarstofunni Túni.

Laugardaginn 25. ágúst verður opinn dagur í Skaftholti frá kl. 14:00 til 17:00. Lífræn grænmetis- og veitingasala, tónlist og handverk. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Sjá Skaftholt hér á Grænum síðumn.

Birt:
21. ágúst 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Opinn dagur í Skaftholti“, Náttúran.is: 21. ágúst 2012 URL: http://nature.is/d/2012/08/21/opinn-dagur-i-skaftholti/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: