Eftirlit með efnum hert
Eftirlit með efnum, til dæmis eiturefnum og öðrum hættulegum efnum, verður gert markvissara en verið hefur og ábyrgðin á því verður á einni hendi samkvæmt frumvarpi til efnalaga sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra kynnti í ríkisstjórn föstudaginn 17. ágúst sl.
Efnaeftirlit verður fært frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun verður heimilað að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki til að knýja á um úrbætur samkvæmt frumvarpinu sem lagt verður fram á Alþingi í haust.
Ljósmynd af halli.files.wordpress.com, af iðnaðarsalti.
Birt:
20. ágúst 2013
Tilvitnun:
Rúv „Eftirlit með efnum hert“, Náttúran.is: 20. ágúst 2013 URL: http://nature.is/d/2012/08/20/eftirlit-med-efnum-hert/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 20. ágúst 2012
breytt: 1. janúar 2013