Fréttagátt fyrir alla
Náttúran.is er óháður regnhlífarvefur og birtir skoðanir allra sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri. Hver sem er getur sent inn frétt og tilkynnt um viðburð. Þær fréttir sem birtar eru á Náttúrunni verða að birtast undir nafni höfundar og ber höfundur einn ábyrgð á skrifum sínum. Sjá Fréttir Náttúrunnar.

Siðferðileg mörk
Náttúran.is áskilur sér rétt til að taka út fréttir og athugasemdir sem eru særandi, móðgandi eða geta beinlínis skaðað einhverja persónu, fyrirtæki eða stofnun. Náttúran tekur ekki afstöðu til pólitískra mála en er yfirlýstur málsvari náttúrunnar.

Fréttir og Grænvarp
Stefna Náttúrunnar er að koma á framfæri öllu því sem fréttnæmt getur talist á sviði náttúru- og umhverfismála á Íslandi. Þar má nefna nýsköpun á sviði vöruþróunar og þjónustu, fundir og ráðstefnur, yfirlýsingar og kærur, ferðamál og útivera, uppskeru og ræktun, sem og allt það sem tengist þeim persónum, félögum, stofnunum og fyrirtækjum sem tengjast málefninu á einhvern hátt. Náttúran.is leitast einnig við að tengja Ísland við alþjóðasamfélagið og birtir greinar um þróun umhverfismála hvaðanæva að úr heiminum.

Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Guðrún A. Tryggvadóttir.

Senda frétt eða grein til Náttúrunnar á nature@nature.is.

Tákn fyrir fréttir Náttúrunnar: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Natturan.is

Birt:
1. september 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fréttastefna Náttúrunnar“, Náttúran.is: 1. september 2014 URL: http://nature.is/d/2007/04/27/frttastefna/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 27. apríl 2007
breytt: 11. september 2014

Skilaboð: