Ljósmyndir og myndir gegna mikilvægu hlutverki á hverju heimili ekki síður en tónlist og bækur. Hvort sem um verk virtra listamanna eða ljósmyndir af fjölskyldunni gildir að frágangur, upphenging og samspil við það sem fyrir er í rýminu gerir gæfumuninn. Það góða við „góða myndlist“ og „ekta“ ljósmyndir er að þær eru vandaðar, fara ekki úr tísku og eru því ákaflega umhverfisvænar.

Um eftirprentanir og tískuskraut gildir það aftur á móti að líftíminn er stuttur vegna lélegra gæða og aðeins spurning um hvenær skrautið endar á haugunum. Ef þú þarft að kaupa skraut og skipta um myndir reglulega hafðu þá í huga að þau séu úr efnum sem hafa ekki skaðlega áhrif um aldur og ævi eftir að þú hefur losað þig við þá.

Birt:
14. apríl 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ljósmyndir“, Náttúran.is: 14. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2007/06/26/ljsmyndir/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 26. júní 2007
breytt: 18. maí 2014

Skilaboð: