Í áhættuskoðun almannavarna er leitast við að skilgreina og kortleggja hættur, sem almannavarnir gætu þurft að takast á við í framtíðinni. Þessar hættur eru af ýmsum stærðum, gerðum og uppruna, með mismunandi líkur, tíðni og alvarleika. Á árunum 2008 til 2011 var unnin áhættuskoðun fyrir allt landið til að kortleggja hættur og áhættur á landinu. Unnið var með heimamönnum í öllum 15 lögregluumdæmunum með almannavarnanefndum, lögreglustjórum og fleirum. Ekki hafa öll umdæmi tekið afstöðu til og metið alla þá þætti sem áhættuskoðunin náði til heldur hafa þau valið áhættur sem þau telja að gætu haft áhrif í þeirra umdæmi.

Helstu niðurstöður benda til að auka þarf viðbúnað í almannavarnakerfinu verulega og má þar nefna vegna atburða eins og eldgosa, jarðskjálfta og ýmis konar flóða. Útbúa þarf hópslysaáætlanir í flestum umdæmum bæði á landi og sjó. Skilgreina þarf viðbúnað og viðbrögð í almannavarnakerfinu vegna ýmis konar hættulegara efna, bruna þeirra og mengunar frá þeim. Í mörgum umdæmum er óskað eftir viðbragðsáætlunum vegna kjarr- og gróðurelda og að áhættan verði skoðuð frekar vegna slysa og óhappa í stórum skemmtiferðaskipum við landið. Þá er mikilvægt að styrkja verulega viðbúnað og viðbrögð innan almannavarnakerfisins vegna stórfelldra bilana og truflana á helstu innviðum landsins eins og veitum, fjarskiptum, samgöngum og öryggismálum.

Ríkislögreglustjóri hefur nú gefið út helstu niðurstöður áhættuskoðunar almannavara 2011 en hægt er að nálgast skýrsluna hér

Hægt er að nálgast áhættuskoðun einstakra umdæma hér

Birt:
8. mars 2012
Tilvitnun:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra „Áhættuskoðun almannavarna 2011“, Náttúran.is: 8. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/08/ahaettuskodun-almannavarna-2011/ [Skoðað:27. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: