Grænt Reykjavíkurkort er samvinnuverkefni vefsins Náttúran.is, fjölþjóðlega verkefnisins Green Map® System, Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands. Tilgangur grænna korta víða um heim er að gera vistvæna kosti á sviði viðskipta, menningar og ferðaþjónustu sýnilegri og aðgengilegri. Græn kort hafa nú verið þróuð í yfir 600 sveitarfélögum, borgum og hverfum í 55 löndum. Ísland er fyrsta landið sem flokkar allt landið eftir Green Map kerfinu.

Prentútgáfa Græna Reykjavíkurkortsins er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og byggir á vefútgáfu Græna Íslandskortsins hér á Náttúran.is en hún tekur fyrir allt Ísland með yfir 3.000 skráningum í 100 flokkum.

Green Map er lifandi kerfi og lagar sig að þeirri þróun sem á sér stað í þjóðfélaginu. Það er von útgefanda að græn kort verði með öllu ónauðsynleg innan fárra ára enda verði græn hugsun þá orðin sjálfsögð, ekki undantekning, eins og nú er. En þangað til er öllum frjálst að fá skráningu á Grænt Reykjavíkurkort og Grænt Íslandskort svo framarlega sem að starfsemi viðkomandi uppfylli þau skilyrði og viðmið sem sett eru af Green Map kerfinu.

Græna Reykjavíkurkortið er Svansmerktur prentgripur, prentað á Svansvottaðan pappír í Svansmerktu prentsmiðjunni Odda.

Hægt er nálgast kortið ókeypis hjá Höfuðborgarstofu og víðar í borginni eða panta það hér á vef Náttúran.is gegn greiðslu kostnaðar við pökkun og heimsendingu. Panta kortið hér.

Græna Reykjavíkurkortið er hannað af Guðrúnu A. Tryggvadóttur & Signýju Kolbeinsdóttur.

Birt:
27. febrúar 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Grænt Reykjavíkurkort í prentútgáfu“, Náttúran.is: 27. febrúar 2012 URL: http://nature.is/d/2010/10/05/graent-reykjavikurkort-nu-komid-ut-i-prentutgafu/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. október 2010
breytt: 30. október 2014

Skilaboð: