Fimm félagasamtök á sviði náttúru- og umhverfisverndar og fagfélög kennara hafa sent stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og mennta- og menningarmálaráðherra eftirfarandi áskorun vegna hugmynda um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands í því söluferli sem nú stendur yfir á húsnæðinu í Öskjuhlíðinni:

„Undirrituð samtök hvetja mennta- og menningarmálaráðherra eindregið til þess að gaumgæfa vel hugmyndir um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands. Í því skyni láti hún gera úttekt á því hversu vel húsnæðið á Öskjuhlíðinni henti slíkri starfsemi og hvaða leiðir skulu farnar svo eignarhald þess færist til ríkisins. Náttúruminjasafn Íslands er lögum samkvæmt eitt þriggja höfuðsafna þjóðarinnar og á að gegna lykilhlutverki í kynningu og fræðslu um náttúru Íslands. Safnið hefur verið á hrakhólum og búið við óviðunandi aðstæður svo áratugum skiptir. Nú er svo komið að það á engan samastað fyrir sýningastarfsemi sína og safnmunir eru geymdir ofan í kössum. Veglegt höfuðsafn í náttúrufræðum er stolt hverrar velstæðrar þjóðar og dýrmætur fróðleiksbrunnur fyrir þegna og gesti viðkomandi lands. Í ljósi þess að Íslendingar byggja atvinnu sína og líf á náttúru landsins í mjög ríkum mæli, auk þess sem langflestir erlendir ferðamenn sækja landið heim vegna náttúrunnar, skiptir öllu máli að bjóða upp á vandað höfuðsafn um náttúru landsins sem vel er í sveit sett og sómi er að.

Hið íslenska náttúrufræðifélag

Landvernd

Samlíf – Samtök líffræðikennara

Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi

Félag raungreinakennara

Ljósmynd: Geirfuglinn, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
16. febrúar 2012
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Áskorun til stjórnar OR og menntamálaráðherra vegna Náttúruminjasafns Íslands og söluferlis Perlunnar “, Náttúran.is: 16. febrúar 2012 URL: http://nature.is/d/2012/02/16/askorun-til-stjornar-or-og-menntamalaradherra-vegn/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: