Náttúran birtir nú fimmta sáðalmanak ársins 2012 en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur    Tími

1.   júní   00 - 24 rót
2.   júní   00 - 03 rót, 04 - 24 blóm
3.   júní   óhagstætt
4.   júní   00 - 03 óhagstætt, 04 – 16 rót, 17 – 24 blað
5.   júní   00 – 09 blað, 10 – 24 óhagstætt
6.   júní   00 – 24 óhagstætt
7.   júní   00 – 11 ávextir, 12 – 24 rót
8.   júní   00 – 16 rót, 17 – 24 blóm
9.   júní   00 – 06 blóm, 07 – 13 rót, 14 – 24 blóm
10. júní   00 – 24 blóm
11. júní   00 – 11 blóm, 12 – 15 óhagstætt 15 – 24 ávextir
12. júní   00 – 06 ávextir, 08 – 24 blað
13. júní   00 – 06 blað, 07 – 16 rót, 17 – 24 blað
14. júní   00 – 15 blað, 16 – 24 ávextir
15. júní   00 – 24 ávextir
16. júní   00 – 16 ávextir, 17 – 24 rót
17. júní   00 – 24 rót
18. júní   00 – 24 rót
19. júní   00 – 16 rót, 17 – 24 blóm
20. júní   00 – 24 blóm
21. júní   00 – 23 blóm
22. júní   00 – 24 blað
23. júní   00 – 14 blað, 15 – 22 ávextir
24. júní   00 – 08 blóm, 09 – 24 ávextir
25. júní   00 – 24 ávextir
26. júní   00 – 05 ávextir, 06 – 24 rót
27. júní   00 – 24 rót
28. júní   00 – 24 rót
29. júní   00 – 03 rót, 04 – 24 blóm
30. júní   00 – 18 blóm, 19 – 24 óhagstætt

1. til og með 4. júní er hagstætt tímabil til útplöntunar/gróðursetningar. 
5. til og með 18. júní hagstætt tímabil til söfnunar blað og blómhluta jurta.
19. til og með 30. júní aftur hagstætt tímabil til gróðursetningar/útplöntunar.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.


Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáðalmanak fyrir júní 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
1. júní 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Hildur Hákonardóttir „Sáðalmanak fyrir júní 2012“, Náttúran.is: 1. júní 2012 URL: http://nature.is/d/2012/06/01/sadalmanak-fyrir-juni-2012/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: