Fulltrúar Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands (NSV) afhentu í gær Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bókina „Reykjanesskagi - Ruslatunnan í Rammaáætlun“. Í bókinni er fjallað um þau svæði á Reykjanesskaga sem falla í virkjanaflokk samkvæmt þeim tillögum rammaáætlunar sem nú liggja fyrir Alþingi.

Fjöldi mynda prýðir bókina en Ellert Grétarsson, ljósmyndari og stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands, er höfundur hennar. Bókin er gefin út af þrettán náttúruverndarsamtökum sem skiluðu sameiginlegri umsögn um drög að þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða í nóvember á liðnu ári. Náttúruverndarsamtökin þrettán gáfu öllum þingmönnum bókina.

Í bókinni segir meðal annars: ,,Öllum helstu náttúruperlum svæðisins verður fórnað undir jarðvarmavirkjanir. Reykjanesskaginn verður eitt samfellt orkuvinnslusvæði undirlagður orkumannvirkjum, s.s. borstæðum, stöðvarhúsum, háspennulínum, hitaveiturörum og línuvegum."

Hægt er að skoða vefútgáfu bókarinnar með því að smella hér.

Ljósmynd: Frá afhendingu bókarinnar á Alþingi í gær, ljósmynd frá Landvernd.

Birt:
31. maí 2012
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „Gáfu þingmönnum bók um Reykjanesskaga“, Náttúran.is: 31. maí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/05/31/gafu-thingmonnum-bok-um-reykjanesskaga/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: